Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

SAFT UNGMENNARÁÐ

06.05.2009 11:24
SAFT UNGMENNARÁÐ SAFT UNGMENNARÁÐ

SAFT - Samfélag, fjölskylda og tækni, vakningarátak um örugga tækninotkun barna og unglinga á Íslandi, hefur hafið undirbúning að stofnun ungmennaráðs.

Ungmennaráðið samanstendur af krökkum á aldrinum 12-18 ára sem koma alls staðar að af landinu. Ráðið mun aðstoða við uppfærslu á heimasíðu SAFT, Facebook og Myspace síðum verkefnisins. Ráðið mun einnig vinna hugmyndir um það hvernig eigi að kenna ánægjulega og örugga netnotkun í skólum landsins, koma að hönnun kennsluefnis, vera ráðgefandi um hönnun og framkvæmd herferða, sinna jafningjafræðslu og halda erindi á foreldrafundum.

Allir sem eru í ráðinu hafa áhuga á netinu og öllum þeim möguleikum sem það hefur upp á að bjóða og geta unnið með öðrum í því að gera netið að öruggari stað fyrir okkur öll. Ungmennaráðið hittist einu sinni á ári þar sem skoðuð er nýjasta tækni og málin rædd. Ráðið mun einnig halda fjarfundi fjórum sinnum á ári, þá með aðstoð tölvutækninnar. Ráðgert er að fulltrúar ráðsins sitji árlegan Evrópufund ungmennaráða.

Í tilefni af stofnun ungmennaráðs efnir SAFT til samkeppni um logo fyrir ungmennaráð. Hugmyndum má skila inn rafrænt á saft@saft.is fyrir 22. maí.
Úrslit verða tilkynnt 29. maí.

Ungt fólk getur gengið til liðs við ungmennaráðið með því að fylla út eyðublað á www.saft.is. Sérstakir sendiherrar verða svo tilnefndir til þess að fara fyrir starfsemi ungmennaráðs á sínu heimasvæði.

Nánari upplýsingar má finna á www.saft.is
Til baka
English
Hafðu samband