Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Hönnunarsamkeppni

05.02.2008 22:09
Hönnunarsamkeppni Í haust gafst stelpunum í 8. bekk kostur á að taka þátt í hönnunarsamkeppni þar sem hanna átti fermingarfatnað fyrir verslanirnar Sautján og Retro.

Stelpurnar í 8. bekk skiluðu inn frábærum hugmyndum í tugatali. Stílistar úr verslununum völdu síðan bestu hönnunina sem reyndist erfitt val því svo margar góðar hugmyndir komur fram. Þær sem hlutu verðlaun í formi gjafabréfs voru Ísabella Sævarsdóttir 8MB og Björk Magnúsdóttir 8MB. Hugmyndirnar verða að einhverju leyti notaðar í fermingarfatnað þetta árið. Fötin eru saumuð hérlendis, í London og París.

Allar stelpurnar sem tóku þátt stóðu sig mjög vel og kom dómnefndinni á óvart hve hugmyndaríkar og skapandi stelpurnar eru.

Við óskum þeim Ísabellu og Björk til hamingju með sigurinn.
Til baka
English
Hafðu samband